| VIÐ ERUM SÆTAR SYSTUR OG HEITUM: | |
|
|
| BJARKLIND, DAGBJÖRT OG ÞÓREY | |
|
Um mig:
Bjarklind er fædd þann 29. nóvember 1996
Þórey er fædd þann 27. október 2000 Dagbjört er fædd þann 24. september 2007 Við erum undurfallegar systur og okkur þykir mjög vænt um hvor aðra. Okkur finnst mest gaman að leika við vinkonur okkar og stundum gerum við eitthvað skemmtilegt saman. Okkur líður best heima hjá okkur og við reynum alltaf að hafa kósíkvöld um helgar og horfa á sjónvarpið saman öll fjölskyldan. Í september ´07 eignuðumst við litla systir og okkur þykir mjög vænt um hana og erum mjög duglegar að passa hana og rífumst um að fá að halda á henni. Hún er algjör prinsessa og verður dekruð í botn. |
|
|
|
|
Annað:
Pabbi okkar heitir Símon og mamma okkar heitir Berglind. Þau eru mjög góð við okkur enda erum við litlu prinsessurnar þeirra og þau gera allt sem þau geta til að okkur líði sem best.
Bjarklind Nafn þetta er myndað af kvennafninu Björk og viðliðnum lind sem merkir hrein, - tær.Lítill fjörkálfur hefur litið dagsins ljós. BOGAMAÐURINN Bogmannsbarnið er að öllu jöfnu glaðlegt og jákvætt og þægilegt í návist. Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að það fari snemma að ganga og skoða heiminn því bogmaðurinn er merki ferðalaga og strax í bernsku birtist þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlu bogmannskrílin þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau fá ekki útrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk. Bogmenn hafa yfirleitt yndi af íþróttum og hið dæmigerða bogmannsbarn er iðulega á kafi í alls konar íþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogmann er fólgin í því að finna jafnvægi á milli frelsisþarfar annars vegar og ábyrgðarkennar og aga hins vegar. Foreldrar ættu að veita honum aðhald og venja hann á að ljúka því sem hann er að fást við áður en hann byrjar á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær og nokkuð kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska með sér dómgreind og skynsemi. Bogmannsbarnið verður mikið á ferðinni og um leið og það fer að komast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um nágrennið og síðan lengra þannig að það getur verið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni. Góða ferð. Þórey Nafn þetta er samsett af forliðnum Þór í merkingunni þrumuguðinn Þór úr norrænni goðafræði, og viðliðnum ey sem merkir hamingja, - heppni. SPORÐDREKINN Þegar barn í sporðdrekamerkinu lítur dagsins ljós beinast öll augu að því. Og barnið heldur þeirri athygli í langan tíma því það þarf mikla athygli. Foreldrar mega búast við því að heyja valdabaráttu við litla sporðdrekann því hann ætlast oftar en ekki til þess að pabbi og mamma séu boðin og búin þegar hann þarfnast einhvers (ekki 5 mínútum síðar). Þetta er kraftmikið barn og foreldrar þurfa að vera á verði því þau eru snillingar í að fá fólk til að snúast í kringum sig og nota til þess alls kyns kænskubrögð. Uppeldi sporðdrekans getur skipst í tvö horn því þó hann sé ráðríkur, skapstór og þrjóskur getur hann einnig verið blíður og elskulegur. Það borgar sig ekki að skipa honum fyrir eða ætla að ráðskast með hann. Þó slíkar uppeldisaðferðir séu óhentugar fyrir öll börn geta afleiðingarnar orðið sérstaklega slæmar þegar sporðdrekinn á í hlut. Hann getur lokað á umhverfið, dregið sig inn í skel og orðið stífur og jafnvel árásargjarn. Foreldrar þurfa að fylgjast með tilhneigingu litla drekans til að byrgja inni reiði. Best er að fá hann til að opna sig með því að tala við hann í ró og næði. Sporðdrekar eru mjög næmir á umhverfi sitt og því er mikilvægt að umgangast þá með varúð og hreinskilni. Sporðdrekanum er illa við yfirborðsmennsku og fals og missir auðveldlega álit á þeim sem ekki koma heiðarlega fram við hann. Dagbjört Nafn þetta er myndað af forliðnum Dag sem merkir dagur og viðliðnum björt sem merkir björt, - skær. VOGIN Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: “Hvað finnst þér?” Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína. |
|
| Þú ert gestur nr. 32618 |